Almennt - þriðjudagur 28.janúar 2014 - Daníel - Lestrar 347
Í morgun fór hvítabjörninn í ferðalag. Indriði tók hann í skólabílinn og ók með hann til Egilsstaða.
Eins og fram hefur komið í fréttum er verið að taka upp kvikmynd á Reyðarfirði og Egilsstöðum og á hvítabjörninn að standa
vörð við innganginn í flugstöðina. Líklega er þetta fyrsti Þistillinn sem leikur í alþjóðlegri kvikmyd og hyggur á
heimsfrægð. Við bíðum eftir að sjá hann í myndinni.