Íbúar

Grunnskólinn

Grunnskólinn

Fréttir

SJÓFERÐ OG VÍSINDASTARF

með Óla skipstjóran
Í gær, þriðjudaginn, fórum við á sjó með Óla Þorsteins. Veðrið var dásamlegt, sólskin og logn. Við veiddum talsvert af fiski, við fengum ýsu, þorsk, ufsa og makríl. Í dag mældum við alla fiskana og unnum ýmis rannsóknarstörf á þeim. Það sem ekki var notað til rannsóknastarfa var flakað og fryst og ætlum við að nota það seinna í vetur. Líklega höfum við veitt fisk í um 40 máltíðir. Margar myndir voru teknar og verða settar inn á heimasíðuna fljótlega. Á morgun höldum við áfram með þemavinnuna um fisk. Þá fáum við heimsókn frá Skeggjastöðum í Bakkafirði. Brynhildur og Halldór koma en Halldór hefur verið að vinna við eftirlit með fiskibátum og er líka gamall sjómaður. Hann kemur með nýjar tegundir af fiskum sem hann hefur safnað og ætlar að segja okkur frá ýmsu.


ÞEMADAGAR


Eins og undanfarin haust erum við með þemadaga þessa viku. Að þessu sinni er þemað fiskar og nýting þeirra. Við veiðum sjálf og fáum einnig aðrar tegundir gefnar. Eftir að hafa rannsakað fiskana, mælt og vegið frystum við þá til að borða seinna. Útbúin verða súlurit yfir stærð og þingd, teiknaðar ýmsar tegundir af fiskum, skoðað hvað þeir éta og ýmislegt fleira skemmtilegt.

Sjóferð


Á morgun, þriðjudaginn 31.ágúst, ætlum við að fara á sjóinn. Óli Þorsteins sem er einn besti vinur skólans ætlar með okkur eitthvað út fyrir höfnina á Þórshöfn til að veiða ýsu og þorsk. Við höfum heyrt að það sé nóg af fiski rétt fyrir utan höfnina. Við ætlum okkur að gera ýmsar mælingar á veiðinni og síðan á að flaka allt og frysta til að hafa í soðið seinna í vetur.


SKÓLASTARF HAFIÐ

Starfsfólk Svalbarðsskóla vinnur nú við að undirbúa skólastarfið sem hefst á næsta mánudag. Námskeiðum er lokið, verið að vinna í námsskrám og fleira. Fimmtudaginn 19.ágúst er sameiginlegur fundur starfsfólks í grunn- og leikskólum í Ýdölum í Aðaldal.

Mynd augnabliksins

Auglýsingar

YtraÁland

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf