Íbúar

Svalbarðshreppur

Skólanefndarfundur 18.janúar 2110 Mættir voru Gunnar Guðmundarson, Soffía Björgvinsdóttir, Rannveig Ólafsdóttir og Daníel Hansen skólastjóri. Fyrir var

Skólanefnd

Skólanefndarfundur 18.janúar 2110

Mættir voru Gunnar Guðmundarson, Soffía Björgvinsdóttir, Rannveig Ólafsdóttir og Daníel Hansen skólastjóri.

Fyrir var tekið:

1. Skólastjóri fór yfir skólastarfið frá því síðasti fundur var haldinn og hefur það gengið vel. Fækkar um eitt barn á næstu dögum þar sem Amber er á förum til Ástralíu.

2. Kennaramál. Rætt var um kennaramál næsta vetur og er ánægjulegt að vita að tveir réttindakennarar hafa spurst fyrir um stöðu hér. Verður þetta skoðað á næstunni og gengið frá ráðningum fyrir vorið.

3. Sjálfsmat skólans. Fjallað var um úttektarskýrslu á vegum menntamálaráðuneytissins.

4. Húsgögn. Guðmundur og Maren á Raufarhöfn gáfu hljóðkerfi í skólann í tilefni 25 ára afmælis hússins og er þeim þakkað fyrir það. Í tilefni af því var rætt um að nú væri tækifæri fyrir velunnara skólans að hugsa vel til hans. Eitt af því sem mest er þörf á núna eru ný húsgögn í holið.

5. Danskennsla. Í næstu viku verður danskennsla á Þórshöfn og hefur verið ákveðið að nemendur úr Svalbarðsskóa fari allir í dansnám. Líklegast þarf að flytja skólann að mestu til Þórshafnar þessa daga því tvisvar á dag er kennt og í fjórum hópum. Reynt verður að fá inni fyrir þá sem ekki eru að dansa svo þeir geti sinnt sínu námi.

6. Kynningarbréf frá skíðasvæðinu á Dalvík lagt fyrir og rætt um það.

7. Skólastjóra langar til að auka samskipti við Bakkafjarðarskóla og lýst skólanefnd vel á það.

 

Fleira ekki tekið fyrir.

Soffía Björgvinsdótttir

Rannveig Ólafsdóttir

Gunnar Guðmundarson

Daníel Hansen

Mynd augnabliksins

Auglýsingar

YtraÁland
Búís

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf