Íbúar

Svalbarðshreppur

Við erum að sjá myndir og ýmsa atburði frá sveitinni minni í tölvunni. Framkvæmdir sumarið 1950 þegar Búnaðarfélagið keypti  jarðýtu af Caterpillar

Minningabrot frá Braga Eggertssyni frá Laxárdal

Við erum að sjá myndir og ýmsa atburði frá sveitinni minni í tölvunni.

Framkvæmdir sumarið 1950 þegar Búnaðarfélagið keypti  jarðýtu af Caterpillar gerð.

Ég fór á námskeið á Akureyri til að læra að fara með svona verkfæri.

 Þetta var mjög gaman, að fara á flesta bæi í sveitinni og sjá hvað bændur voru undrandi yfir afköstum þessum. Þegar ég kom með vélina á bæ einn vestan Svalbarðsár þá tók bóndinn  mér fagnandi. Aðaláhugamál  hans var að sýna mér heimasætuna, en það gekk ekki sem skyldi. Þá tók hann það til ráðs  að sína mér hrútana, þvílíka kjörgripi. Þessu tók ég mátulega, en sagðist þurfa að hefja framkvæmdir með ýtunni , sem enduðu bara vel.  

Bragi Eggertsson frá Laxárdal


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf