Íbúar

Svalbarðshreppur

  Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 18.6.2010   1.fundur Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson,

Fundargerðir 2010

 

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 18.6.2010

 

1.fundur Mættir til fundar: Ásta Laufey Þórarinsdóttir, Elfa Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason og Sigurður Þór Guðmundsson.

 

 

1.      Kosning oddvita

 

Elfa Benediktsdóttir kosin með öllum greiddum atkvæðum

 

 

2.      Kosning varaoddvita

 

Sigurður Þór Guðmundsson kosinn með öllum greiddum atkvæðum.

 

 

3.      Kosning ritara

 

Ragnar Skúlason

 

 

4.      Fulltrúi í Héraðsnefnd:

 

Sigurður Þór Guðmundsson

 

 

5.      Fulltrúi í Eyþing:

 

Sigurður Þór Guðmundsson

 

 

6.      Kosning í nefndir:

 

a)      Skólanefnd:

 

Hildur Stefánsdóttir, Bjarnveig Skaftfeld og Axel Jóhannesson.

 

Varamenn: Eggert Stefánsson og Bergþóra Stefánsdóttir

 

 

b)      Byggingarnefnd:

 

Jóhannes Jónasson, Jónas Pétur Bóasson og Sigurður Þór Guðmundsson

 

 

c)      Fulltrúi Svalbarðshrepps í Veiðifélögum Sandár og Svalbarðsár:

 

Gunnar Guðmundarson

 

 

d)      Fulltrúi í íþrótta- og tómstundaráð:

 

Eggert Stefánsson

 

Varamaður: Ragnar Skúlason

 

 

e)      Kjörnefnd:

 

Drífa Aradóttir, Eiríkur Kristjánsson og Skúli Ragnarsson

 

Varamenn: Daníel Hansen og Fjóla Runólfsdóttir.

 

 

 

f)       Bókasafnsnefnd:

 

Ina Leverkhöne, Guðrún Ragnhildur Aradóttir og Stefán Eggertsson.

 

 

g)      Fulltrúi í Fossorku:

 

Ragnar Skúlason

 

 

h)      Vímuvarnaráð:

 

Hjördís Matthilde Henriksen

 

 

i)        Skoðunarmenn hreppsreikninga:

 

Jóhannes Sigfússon og Jóhannes Jónasson.

 

 

7.      Önnur mál:

 

a)      Erindi frá Sunnu Björk Ragnarsdóttur

 

Sunna er að vinna fyrir Þekkingarnet Þingeyinga að því að skrá munnmæla- og þjóðsögur úr Þistilfirði. Þekkingarnet Þingeyinga óskar eftir samstarfi um upplýsingaskilti við Frakkagil. Þekkingarnet Þingeyinga leggur til allar heimildir sem aflast úr þessari vinnu og óskar eftir að Svalbarðshreppur leggi til skiltið.

 

 

b)      Vinnuskóli:

 

Elfa og Laufey taka málið að sér.

 

 

c)      Vinnufundur

 

Hreppsnefnd ákveðin í að hittast fljótlega á vinnufundi til að fara yfir fjármál sveitarfélagsins og skoða þá samninga sem sveitarfélegað er bundið af.

 

 

 

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 2.3.2010

 

Mættir til fundar: Friðrik Guðmundsson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason, Sigurður Jens Sverrisson og Stefán Eggertsson.

 

 

 

1.      Kjörskrá lögð fram.

 

Engar athugasemdir gerðar við kjörskrá en athuga þarf hvort erlendar húsmæður í sveitarfélaginu séu með íslenskan ríkisborgararétt.

 

 

 

2.      Fjallskilasamþykkt.

 

Hreppsnefnd fékk drög að nýrri fjallskilasamþykkt fyrir landsvæði frá Vaðlaheiði að Vopnafirði. Hreppsnefd gerði nokkrar athugasemdir og var oddvita falið að koma þeim til réttra aðila.

 

 

 

3.      Ósland.

 

Húseigendum að Óslandi verður leigð 1000 fm lóð umhverfis húsið til 40 ára.

 

 

 

4.      Fossorka

 

Ragnar Skúlason kosinn sem fulltrúi hreppsins á aðalfund Fossorku 2010 og Stefán Eggertsson varamaður.

 

 

 

5.      Ferðaþjónusta

 

Bjarnveig Skaftfeld fær skólahúsnæðið á Svalbarði til afnota í sumar undir ferðaþjónustu.

Fundi slitið.

 

 

 

Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 26.1.2010

 

Mættir til fundar: Friðrik Guðmundsson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason, Sigurður Jens Sverrisson og Stefán Eggertsson.

 

1.       Fjárhagsáætlun 2010, seinni umræða og þriggja ára fjárhagsáætlun

Eftir nokkra umfjöllun var fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 samþykkt og einnig fjárhagsáætlun næstu þriggja ára.

 

 

2.       Útleiga á Flautafelli og Kúðá

Ákvörðun frestað og vill hreppsnefnd vinna meiri undirbúningsvinnu að málinu og koma á íbúaþingi þar sem jarðamálin verði rædd, bæði leiga á beitarrétti og eignarhald jarða sem nú eru í eigu Svalbarðshrepps. Vonast er til að íbúaþingið verði haldið í seinnihluta marsmánaðar.

 

 

3.       Önnur mál

a)      Fundargerð skólanefndar: Lögð fram til kynningar.

b)      Bréf frá Umhverfisstofnun, tilkynning um að hætt hafi verið við að afnema endurgreiðslur við refaveiðar.

c)       Samningur við Norðurþing um sérfræðiþjónustu. Hreppsnefnd Svalbarðshrepps  telur Svalbarðshrepp vera betur borgið í samstarfi við Norðurþing en að brjóta það samstarf upp varðandi félags- og skólaþjónustu.

d)      Jafnréttisnefnd: Valgerður Friðriksdóttir  á Gunnarsstöðum kosin í nefndina í stað Karenar Rutar.

e)      Riðunefnd: Gunnar Guðmundarson kosinn í þá nefnd í stað Geirs Þóroddssonar.

f)       Fasteignagjöld 2007 að upphæð 30.604 kr felld niður.

 Fleira ekki rætt. Fundi slitið.

Mynd augnabliksins

Auglýsingar

YtraÁland
Búís

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf