Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 14.12.2009
Mættir til fundar eru: Friðrik Guðmundsson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason, Sigurður Jens Sverrisson og Stefán Eggertsson.
1. Útsvarsálagning 2010
Útsvar verður 13,28% árið 2010.
2. Fjárhagsáætlun ársins 2010, fyrri umræða
Stefán fór yfir tölur úr fjárhagsáætlun 2009 en sú áætlun stóðst nokkuð vel og einnig var farið yfir tölur úr samrekstri við Langanesbyggd. Ekki er vitað um sérstakar breytingar á tekjum eða gjöldum á næsta ári og urðu engar snarpar umræður undir þessum lið.
3. Leigusamningar á jörðum hreppsins.
Hreppsnefndarmenn eru sammála um að taka leigusamninga á jörðum hreppsins til endurskoðunar og ákveðið að segja upp núverandi leigusamningi við Ragnar Má um Flautafell. Ákveðið að bjóða afnotarétt jarðanna Flautafells og Kúðár til leigu á nýju ári.
4. Önnur mál
a) Fulltrúar í undirbúningsnefnd Kátra Daga.
Sunna Björk Ragnarsdóttir og Gréta Bergrún Jóhannesdóttir
b) Skólamáltíðir
Fæði í skólamötuneyti mun kosta 360 kr á dag, skólaárið 2009-2010.
c) Lóðaleigusamningur milli Hestamannafélagsins Snæfaxa og landeigenda á Gunnarsstöðum II var samþykktur af sveitarfélaginu 12.12.2009.
d) Innsend bréf
Bréf frá Jafnréttisstofu þar sem óskað er eftir jafnréttisáætlun frá sveitarfélaginu.
Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er fjallar um þjónustu við fatlaða.
Bréf frá Stígamótum, beiðni um fjárstyrk. Erindinu hafnað.
Fundi slitið 23:00 eftir nokkurt spjall eftir auglýsta dagskrá.
Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla kl 20:00 þann 30.8. 2009. Mættir til fundar eru:
Gunnar Guðmundarson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason, Sigurður Jens Sverrisson og Stefán Eggertsson.
1. mál. Húsgögn í skólann
Stefán las upp úr fundargerð skólanefndar þar sem nefndin er samþykk því að fresta innkaupum á stólum og borðum fyrir yngstu nemendurna vegna þess að tilboðið sem fékkst var ekki ásættanlegt.
2. mál. Heimasíðugerð
Hreppsnefnd ákveður að taka tilboði Stefnu í heimasíðugerð fyrir Svalbarðshrepp. Tilboðið hljóðar uppá 160.000 í stofnkostnað og u.þ.b. 6000kr mánaðargjald.
3. mál. Tónlistaskóli
Skólanefnd vekur athygli á að hugsanlega væri fjármunum betur varið innan skólans en að greiða í tónlistaskóla sem lítið er nýttur. Oddvita falið að spyrjast fyrir á Þórshöfn hvort mögulegt sé að losna undan greiðslum við tónlistaskóla.
4. mál. Brotajárn
Fyrirspurn frá íbúum varðandi það hvort Svalbarðshreppur taki þátt í vélavinnu við urðun á brotajárni heima á bæjum. Hreppsnefnd vill heldur auglýsa hreinsunarátak sem nær til allra í sveitarfélaginu en að urða fyrir hvern og einn eftir hentugleika.
5. mál. Hólaheiðarvegur
Hreppsnefnd Svalbarðshrepps skorar á umhverfisráðherra að heimila, hið fyrsta, framkvæmdir við Klapparós á Hólaheiðarvegi án umhverfismats.
Með því kemst Hólaheiðarvegur í gagnið en eftir þeirri framkvæmd hafa íbúar í héraðinu beðið í áratugi og aðrar leiðir á svæðinu eru alls ekki í viðunandi ástandi. Vegum á svæðinu hefur ekki verið viðhaldið sem skyldi á undanförnum árum þar sem Hólaheiðarvegur á að leysa þá af hólmi.
6. mál. Félags- og skólaþjónusta.
Stefán sagði frá því að drög að nýjum samningi um Félags- og skólaþjónustu hefðu verið kynnt sveitarfélögum í Þingeyjarsýslum. Samningsgerð er ekki lokið en oddviti mun fylgjast með málinu.
7. mál. Fjallskilareglugerðir/endurskoðun.
Sigurður Þór Guðmundsson kosinn sem fulltrúi Svalbarðshrepps í nefnd sem endurskoðar fjallskilareglugerðir. Til vara er Stefán Eggertsson.
8. mál. Önnur mál.
a) Húsaleiga hjá nýráðnum kennara.
Hreppsnefnd ákveður að nýr kennari greiði 25% af uppsettri húsaleigu.
b) Hundahreinsun.
Oddvita falið að skoða reglur um hundahreinsun og minna á hundahreinsun í dreifibréfi.
Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla kl 19:30 þann 13. júlí 2009. Mættir til fundar eru: Friðrik Guðmundsson, Gunnar Guðmundarson, Ragnar Skúlason, Sigurður J. Sverrisson og Stefán Eggertsson.
- Netsamband í Svalbarðshreppi
Stefán fór yfir framvindu internetmála frá síðasta fundi, samskipti við Magnavík ehf og Fjarskiptasjóð. Magnavík gerði tilraun til að segja sig frá verkinu en Fjarskiptasjóður virðist hvetur Magnavík til áframhaldandi starfa á okkar svæði.
Oddvita falið að skrifa ráðherra um málið.
- Bréf frá Landgræðslu ríkisins
Landgræðsla ríkisins óskar eftir 100.000 kr. styrk við verkefnið Bændur græða landið. Sveitarstjórn telur að hver bóndi sem er þátttakandi í verkefninu eigi frekar að bæta við sig þessum aukakostnaði og hafnar því þessari beiðni.
- Bréf frá Skotveiðifélagi Íslands
Skotveiðifélag Íslands óskar eftir stuðningi Svalbarðshrepps við verkefni sem felur í sér að fjölga hreindýrum í Norður-Þingeyjarsýslu. Sveitarstjórn hefur ekki áhuga fyrir fjölgun hreindýra í Svalbarðshreppi og hafnar því samstarfi um þetta verkefni.
- Stöðuleyfi fyrir frístundahúsi
Jónas P. Bóasson óskar eftir stöðuleyfi fyrir frístundahúsi sem standa mun í landi Garðs. Sveitarstjórn gerir enga athugasemd við þessa framkvæmd og veitir þetta leyfi fúslega.
- Bréf frá Fjallskilanefnd í Öxarfirði
Með bréfi frá 30. nóvember 2008, segir Fjallskilanefnd í Öxarfirði upp samningi milli Öxfirðinga og Þistla um leigu á beitilandi í Svalbarðshreppi. Sveitarstjórn vill síður að af uppsögn verði einmitt nú þegar fyrirhuguð er ný girðing með Hólaheiðarvegi. Ekki er fullvíst hvaða áhrif sú girðing muni hafa á beitarvenjur sauðfjár úr Núpasveit og Öxarfirði. Því vill sveitarstjórn heyra nánar frá Öxfirðingum hvað liggur að baki þessari ákvörðun þeirra.
- Heimasíða Svalbarðshrepps
Stefán hafði aflað sér upplýsinga um heimasíðugerð en á fundinum var ákveðið að Daníel Hansen skólastjóri muni vinna að málinu og velja viðskiptaaðila um gerð og vistun á heimasíðu..
- Reikningar Svalbarðshrepps 2008
Stefán fór í gegnum reikninga Svalbarðshrepps fyrir árið 2008 og kynntu menn sér þá lauslega. Í reikningunum kemur fram að halli á rekstrinum var 2.261.670 kr en eignfærð fjárfesting á árinu er 7,8 milljónir.
Vegna hallareksturs á undanförnum árum er ljóst að eitthvað þarf að gera, t.d. hækka skatta og skera niður útgjöld og nefndu menn þá mikinn kostnað við tónlistaskóla og einnig félags- og skólaþjónustu.
Oddvita falið að segja upp samningi um félagsþjónustu.
- Önnur mál
a) Útihús í Flögu
Stefán kynnti skýrslu frá Sigurði Þór Guðmundssyni en honum var falið að taka byggingarnar í Flögu út og meta framtíðarmöguleika nýtingu þeirra. Einnig rætt um viðhald á íbúðarhúsi í Flögu á ákveðið að sinna því hið fyrsta.
b) Merkingar á býli og á ár í sveitarfélaginu
Oddvita falið að ljúka málinu í samstarfi við Vegagerð ríkisins.
Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla kl 20:30 þann 31.3 2009. Mættir til fundar eru:
Friðrik Guðmundsson, Gunnar Guðmundarson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason og Stefán Eggertsson.
- mál. Kosning í kjörstjórn
Drífa Aradóttir og Skúli Ragnarsson kosin í kjörstjórn, þau sitja nú í kjörnstjórn ásamt Eiríki Kristjánssyni.
Varamenn í kjörstjórn:
Guðrún Hildur Bjarnadóttir
Gunnar Þóroddsson
- mál. Kosning varamanns í skólanefnd
Sigurður Þór Guðmundsson kjörinn sem varamaður í skólanefnd.
- mál. Sorphirða í Svalbarðshreppi
Nokkur umræða skapaðist um sorphirðumál og þótti öllum fundarmönnum heldur dýrt að taka tilboði Stefáns Hauks frá 26. febrúar 2009. Fundarmenn lýstu allir vilja sínum til þess að farið verði í flokkun á sorpi í sveitarfélaginu til að minnka umfang á sorpi og bæta ímynd sveitarfélagsins enn frekar. Hafa hreppsnefndarmenn þá í huga Gænfánann sem skólinn er búinn að fá.
Hugmynd kom fram um að Svalbarðshreppur útvegi safnkassa undir lífrænan úrgang á hvert heimili í sveitarfélaginu og hugsanlega gætu börn í sumarvinnu tekið þátt í að smíða slíka safnkassa.
Umræða skapaðist um að taka tilboði Stefáns Hauks um gáma undir pappa annars vegar og almennt sorp hins vegar en jafnframt að reka áróður fyrir flokkun á sorpi til að draga úr kostnaði við flutning á því.
Ákveðið að athuga þann möguleika að sveitarfélagið kaupi gáma undir pappa o.fl. í stað þess að leigja þá.
- mál. Önnur mál
a) Heimasíða fyrir Svalbarðshrepp. Stefán vakti máls á því að nokkrir aðilar hafi nefnt það að koma þurfi upp heimasíðu fyrir Svalbarðshrepp. Allir fundarmenn tóku mjög vel í þá hugmynd og var oddvita falið að vinna að málinu þ.e.a.s að koma upp sjálfstæðri heimasíðu fyrir Svalbarðshrepp.
b) Laun fyrir heimilishjálp. Ákveðið að hækka grunnlaun fyrir heimilishjálp og þrif á skóla í 1100kr á tímann.
c) Gunnar Guðmundarson sagði frá áhuga sem hann hefði orðið var við á að koma upp minjasafni í Svalbarðshreppi, t.d. í tengslum við Svalbarðsskóla. Vitað er um ýmsa hluti hér í sveit sem eiga fullt erindi á slíkt minjasafn. Í Krossavík er enn til talsvert af handsmíðuðum verkfærum af Björgvini í Krossavík.
Fleira ekki gert og fundi slitið.
Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla fimmtudaginn 26. febrúar 2009.
Mættir til fundar: Friðrik Guðmundsson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason, Sigurður J. Sverrisson og Stefán Eggertsson.
- Fjárveiting í Hvammsheiðarkofa.
Stefán kynnti bréf frá eigendum Hvammsheiðarkofa þar sem þeir fara fram á 500.000kr framlagi frá Svalbarðshreppi til viðbyggingar og endurbóta á kofanum. Sigurður Jens vék af fundi meðan umfjöllun málsins stóð yfir. Fjárbeiðnin var samþykkt af öllum fundarmönnum. Bera skal þessa ákvörðun undir endurskoðanda hreppsreikninga.
- Bréf frá Veiðifélagi Hafralónsár um minkaveiði.
Stefán las bréf frá Reyni Bergsveinssyni sem rekur fyrirtækið Vaskur á bakka. Í bréfinu kemur fram ágæti svokallaðra minkasía og hugmyndir um að setja slíkar síur í Hafralónsá. Hreppsnefnd fagnar því að veiðifélögin í Svalbarðshreppi skuli sýna minkaveiðum slíkan áhuga.
- Samrekstur með Langanesbyggð, menningarfulltrúi o.fl.
Á fundi í samrekstrarráði var ákveðið að Svalbarðshreppur taki þátt í rekstri æskulýðs- og menningarfulltrúa með Langanesbyggð. Kostnaðurinn skiptist eftir íbúafjölda en vægi Svalbarðshrepps er þó ekki nema 0,55. Á fundinn í samrekstrarráði mættu Stefán Eggertsson og Sigurður Jens fyrir hönd Svalbarðshrepps.
- Úrgangsmál
Stefán Haukur Grímsson mættur sem gestur á fundinn. Stefán kynnti kostnaðaráætlun yfir leigu á gámum og sorphirðu í Svalbarðshreppi. Í kostnaðaráætluninni kemur fram leiga á tveimur gámum undir almennt sorp og ein skúffa undir stærra sorp, meðhöndlun á spilliefnum og urðun á sorpinu. Einnig er áætlun um akstur varðandi sorphirðuna. Samtals hljóðar kostnaðaráætlunin uppá 3.615.604 kr. Stefán Haukur sagði ennfremur frá því að líklega væri mögulegt að draga úr aksturskostnaði með því að fylgjast með gámunum og reyna að hafa hámarksnýtingu á þeim. Ef af samningum verður milli Svalbarðshrepps og Stefáns Hauks mun þar koma fram endurskoðunarákvæði sem nýtist ef t.d. Stefán tekur við sorphirðu í Langanesbyggð.
- Styrkur til nýrra íbúðarhússbygginga
Stefán færði í tal hvort hreppurinn eigi ekki að endurnýja tilboðið sem sett var fram 12.desember 2005 að veita stuðning við nýjar íbúðarhúsbyggingar.
Ákveðið að framlengja tilboðið tilboðið óbreytt en hækka tölurnar um 25%
Í fundargerð frá 22.jan 2009 má sjá skuldbindingar upp á 7,7 milj.því til viðbótar
Gerir hreppsnefnd svohljóðandi áætlun:
Byggingastyrkur í Hvammsheiði 500 þúsund
Til sorphirðu 1.500 ---------
Innanhús í skólanum 4.000 ---------
Viðhald og endurbætur í Flögu 2.000 ---------
Áheit á ný íbúðarhús 1.000
7.Önnur mál
Samþykkt að leigja Bjarnveigu Skaftfeld skólahúsið næstkomandi sumar til
gestamóttöku.
Áður en farið var að ræða önnur mál fór Ragnar Skúlason af fundinum til að sinna
Sundkennslu á Þórshöfn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 19.45
Hreppsnefndarfundur í Svalbarðsskóla 22. janúar 2009 kl 14:00
Mættir eru Friðrik Guðmundsson, Hreinn Geirsson, Ragnar Skúlason, Sigurður Jens Sverrisson og Stefán Eggertsson. Einnig eru gestir á fundinum þeir Reinhard Reynisson og Björn Ingimarsson báðir fyrir hönd Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga.
- mál
Reinhard fór yfir stöðu Atvinnuþróunarfélagsins nú og á undanförnum árum, tilgang þess og starfsemi og Björn bætti nokkrum orðum við varðandi verkefni sem félagið hefur komið að á undanförnum árum t.d. Snow Magic í Mývatnssveit. Umræða skapaðist um nýsköpunarstarf í Þingeyjarsýslum og að endingu fóru þeir fram á að Svalbarðshreppur muni verðbæta árlegar greiðslur til félagsins um u.þ.b. 13% fyrir árið 2009.
- mál
Leigutakar við Sandá hafa óskað eftir niðurfellingu á vísitölu fyrir árið 2009. Hreppsnefnd samþykk því að vísitala ársins 2009 verði aðeins greidd að hálfu þ.e.a.s. nota u.þ.b. 6% fyrir árið en vísitalan reiknast þó að fullu í samningnum.
- mál
Fjárhagsáætlun ársins 2009, fyrri umræða
Staðan um áramót 2008-2009, innistæða 18,6 milljónir á peningamarkaðsreikningi og innistæða á hlaupareikningi 6,6 milljónir. Eftir er að borga 4 milljónir í samrekstur, hlutafjáraukningu í Sparisjóð ef af verður 3 milljónir og 180 þúsund í aðra styrki. Einnig var búið að lofa 500.000 í jarðhitaleit. Samtals eru þetta um 7,7 milljónir. Rætt um hvað beri helst að framkvæma á árinu og nokkur umræða skapaðist um viðhald húsa og nýbyggingar í Flögu. Umræðu um fjárhagsáætlun frestað til næsta fundar.
- mál
Æskulýðs- og menningarfulltrúi
Bréf frá Langanesbyggð þar sem Svalbarðshreppi er boðið að taka þátt í ráðningu æskulýðs- og menningarfulltrúa. Stefáni falið að kynna sér málið, t.d. launakjör og starfslýsingu.
- Bréf frá Langanesbyggð þar sem farið er fram á 100.000 kr fjárveitingu í Sauðaneshús en henni hafnað.
- mál
Bréf frá Heilbrigðisráðuneytinu.
Óskað er eftir umsögn sveitastjórna um fyrirhugaða sameiningu heilbrigðis- stofnana á Norðurlandi. Oddvita falið að svara erindinu og fara fram á að Þórshöfn verði áfram og undantekningarlaust, læknissetur.
- mál
Bréf frá Norðurþingi um félagsþjónustu en samningur þar að lútandi rennur út um næstu áramót. Hreppsnefndarmenn sammála um að hag sveitarfélagsins sé jafn vel borgið með því að kaupa þessa þjónustu í verktöku en að standa að slíkum samningi.
- mál
Bréf frá Norðurþingi varðandi skólaþjónustu en samningur þar að lútandi rennur út um næstu áramót. Að höfðu samráði við skólastjóra var ákveðið að framlengja samninginn.
- mál
Ráðningasamningur milli Svalbarðshrepps og Björns Haraldssonar, endurskoðanda hreppsreikninga. Stefán kynnti samninginn og var hann samþykktur án athugasemda.
Fundi slitið
