Almennt - mánudagur 14.mars 2022
Fimmtudaginn 17. mars kl 20. Verður haldin í Þórsveri Þórshöfn íbúafundur þar sem sameiningartillaga Svalbarðshrepps og Langanesbyggðar verður kynnt. Fundurinn verður jafnfram sendur út í streymi sem verður kynnt á heimasíðu.
Kjörfundur verður síðan haldin í Svalbarðsskóla Laugardaginn 26. mars kl 10-18.
Kjörskrá liggur frammi hjá Oddvita í Holti.
Kosningarkaffi verður í Forystufjár Setrinu á kjördag.